Björg Fenger
2. sæti
GARÐABÆR

Garðabær í fremstu röð

Þegar við hjónin völdum að flytja í Garðabæ með litlu strákana okkar tvo, horfðum við til þess að í Garðabæ hafði tekist að móta öflugt fjölskylduvænt samfélag þar sem lögð var áhersla á fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf, góða skóla og traustan fjárhag. Frá því að ég varð bæjarfulltrúi hef ég haft þetta að leiðarljósi og unnið markvisst að því að byggja hér áfram upp samfélag sem er fjölskylduvænt og eftirsóknarvert fyrir einstaklinga á öllum aldri.

Fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf

Í Garðabæ hafa verið byggðar upp framúrskarandi aðstæður til að stunda fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf en nýjasta dæmið um slíka uppbyggingu er Miðgarður, fjölnota íþróttahús Garðabæjar. Jafnframt hefur bæjarfélagið gert fjölmarga samstarfssamninga við frjálsu félögin í bænum sem sjá um að halda úti blómlegu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir íbúa á öllum aldri. Þetta skiptir miklu máli því rannsóknir sýna að skipulagt íþrótta- og tómstundastarf er ein besta forvörn sem hægt er að bjóða upp á. Ég tel að gott og öflugt samstarf bæjarins og íþrótta- og tómstundafélaganna sé mikilvægt og styðji enn frekar við líkamlega, andlega og félagslega heilsu bæjarbúa.

Góðir skólar

Hinn mikli metnaður, fjölbreytileiki og framsýni sem einkennir allt skólastarf í Garðabæ er eftirtektarverður. Það er jafnframt styrkur bæjarfélagsins að veita foreldrum og nemendum val um skóla þar sem hver skóli fyrir sig byggir á ólíkum stefnum og áherslum sem ætti að auðvelda nemendum að finna námsumhverfi við sitt hæfi. Í skólunum er haft að leiðarljósi að nemendur fái verkefni við sitt hæfi og reynt að grípa inn í um leið og nemendur sýna merki um að þurfa stuðning eða aðstoð. Líðan barna í skólum Garðabæjar er almennt góð sem og námsárangur nemenda enda þetta tvennt nátengt. Við þurfum að huga enn frekar að starfsumhverfi skólanna sem þarf að vera í sífelldri þróun þannig að leik- og grunnskólar bæjarins séu eftirsóknarverðir vinnustaðir, enda starfsfólk skólanna lykilinn að öflugu og góðu skólastarfi.

Fjárhagslegur stöðugleiki

Fjárhagsleg staða bæjarins er sterk sem er forsenda þess að unnt er að bjóða upp á góða þjónustu og öfluga innviði fyrir íbúana. Fjárhagslegur stöðuleiki byggist ekki upp á einni nóttu heldur á fyrirhyggju, ráðdeild og skynsemi þeirra sem stýrt hafa bænum. Ég legg áherslu á að rekstur Garðabæjar sé áfram traustur, skuldsetning hófleg og álögur lágar.

Framtíðin er björt

Þrátt fyrir að vel hafi verið gert undanfarin ár má ekki láta staðar numið. Í ört vaxandi bæjarfélagi eru mörg mikilvæg verkefni framundan sem meðal annars snúa að skipulagi nýrra hverfa og uppbyggingu innviða til að geta boðið íbúum upp á framúrskarandi þjónustu.

Ég hef áhuga á að halda áfram að leggja mitt af mörkum til að vinna að því að Garðabær haldi stöðu sinni sem eftirsóknarvert bæjarfélag þar sem fjölskyldur sækjast eftir að ala upp börnin sín og þar sem eldra fólk vill njóta efri áranna.

Björg Fenger

Forseti bæjarstjórnar og formaður íþrótta- og tómstundaráðs.

Sækist eftir 2. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ

Fleiri greinar

Prófkjör Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ fer fram laugardaginn 5. mars 2022

Ganga í Sjálfstæðisflokkinn