Björg Fenger
2. sæti
GARÐABÆR

Stórbætt aðstaða til líkams- og heilsuræktar

Fjölnota íþróttahús rís í Vetrarmýri

Á síðustu vikum og mánuðum hafa bæjarbúar fylgst með hvernig nýtt fjölnota íþróttahús hefur risið hratt og örugglega upp í Vetrarmýrinni. Afhending nálgast óðfluga en þessa dagana er verið að vinna við að loka húsinu. Samkvæmt verkáætlun verktakans á að afhenda húsið í lok þessa árs og verður það svo fullfrágengið, í samræmi við útboðsgögn, í febrúar 2022.

Aðdragandinn að framkvæmdinni hefur verið töluvert langur en umræða um nauðsyn þess að í Garðabæ rísi yfirbyggt knatthús má rekja allt aftur til síðustu aldar. Má segja að umræðan, þarfagreining og samtalið við frjálsu félögin í bænum hafi leitt til þess að hugmyndin hafi þroskast og þróast áfram, sem síðan leiddi til þess að ákveðið var að ráðast í þá stóru framkvæmd sem felst í byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri.

Æfingahúsnæði

Í ljósi framangreindrar þarfagreiningar og samráðs við íþróttafélögin var ákveðið að hanna fjölnota íþróttahús með áherslu á æfingaaðstöðu fyrir knattspyrnuiðkendur og þá sérstaklega horft til þess að koma til móts við yngri iðkendur. Í húsinu verður að finna knattspyrnuvöll í fullri stærð með tilheyrandi öryggissvæðum og gervigrasi veggjanna á milli. Lofthæð verður 14 metrar yfir miðju vallarins en 11 metrar yfir hliðarlínum. Hægt verður að skipta vellinum upp í fernt með tjöldum og þannig unnt að hafa fleiri en einn flokk í einu á æfingu eða fleiri íþróttagreinar samtímis. Einnig verður afmarkað upphitunarsvæði og teygjusvæði þannig að nýtingin á vellinum sjálfum á að vera með besta móti. Gert er ráð fyrir áhorfendaaðstöðu í stúku fyrir um 800 manns. Jafnframt verður húsið nýtt til kennslu og keppni og þá aðallega í yngri flokkum og á æfingamótum. Húsinu er ekki ætlað að vera vettvangur fyrir keppni í efstu deildum nema í undantekningartilvikum, enda þykir eðlilegra að keppni í meistaraflokkum í knattspyrnu fari fram utandyra. Rétt er að geta þess að gert er ráð fyrir að knattspyrnuleikvangur rísi utandyra við hlið hússins þegar fram líða stundir.

Lyftingasalur og önnur fjölbreytt aðstaða

Í húsinu verður jafnframt styrktar- og lyftingasalur sem gerir lyftingafólki kleift að æfa við góðar aðstæður ásamt því að íþróttafólkið okkar og almenningur getur nýtt aðstöðuna við styrktarþjálfun. Svalir verða á annarri hæð hússins í kringum allan völlinn og verður gólfið þar með viðeigandi undirlagi þannig að fólk á öllum aldri getur gengið eða skokkað þar óháð veðri, vindum og öðrum íþróttaæfingum í húsinu. Klifurveggur verður settur upp inni í stóra salnum og anddyrið og opið svæði á annarri hæð hússins má nýta til ýmissa æfinga sem og til samveru fyrir og eftir æfingar.

Til viðbótar má geta þess að þegar húsið verður afhent í lok ársins verða tvær hæðir í viðbyggingu afhentar sem óskilgreint rými, alls 3.200 m2, en þar má í framtíðinni hugsa sér alls kyns starfsemi tengt líkams- og heilsurækt, fræðslu og kennslu. Húsið verður því svo sannarlega fjölnota enda verða alls um 4.800 m2 á þremur hæðum til notkunar í ýmislegt tengt líkams- og heilsurækt, fyrir utan salinn sjálfan.

Bygging fjölnota íþróttahússins mun án efa hafa mjög jákvæð áhrif á íþróttalífið í bænum enda mun aðstaðan verða fjölbreyttari og enn betri en nú er. Einnig mun hið nýja húsnæði leiða til ýmissa tækifæra í þeim íþróttamannvirkjum sem fyrir eru þar sem rýmkar um starfsemina með tilkomu nýja hússins. Staðsetning hússins er einnig tækifæri til að byggja upp miðstöð íþrótta, líkams- og heilsuræktar sem tengst getur fjölbreyttum útivistarmöguleikum í upplandi bæjarins, hvort sem það eru göngur, hlaup, hjólreiðar eða gönguskíði svo einhver dæmi séu nefnd.

Það er ánægjulegt að verða vitni að því að bygging hússins nálgast lokametrana. Undirrituð sátu í undirbúnings- og dómnefnd alútboðssins fyrir bygginguna ásamt Baldri Svavarssyni arkitekt, Guðrúnu Dóru Brynjólfsdóttur skipulagsfræðingi og Sigurði Bjarnasyni frá hagsmunaaðilum. Nefndin vann vel ásamt fjölda sérfræðinga og var einhuga um niðurstöðuna.

Heilsueflandi samfélag

Að lokum má geta þess að framkvæmdin við fjölnota íþróttahúsið er til vitnis um þá miklu áherslu sem bæjaryfirvöld hafa sett á góða aðstöðu til íþrótta, líkams- og heilsuræktar sem og útivistar í bænum. Okkur þykir líka mikilvægt að minna á aðrar minni en mikilvægar framkvæmdir við íþróttamannvirki á liðnum árum. Má þar meðal annars nefna uppbyggingu og endurbyggingu á mannvirkjum á Álftanesi, endurbætur í Mýrinni, stækkun og umbætur á knattspyrnusvæði við Ásgarð, stækkun á íþróttamiðstöð GKG, endurnýjun sundlauga og körfuboltasals í Ásgarði. Jafnframt er rétt að nefna að átak hefur verið gert í uppbyggingu á göngu- og hjólreiðastígum bæjarins. Við verðum vör við mikla ánægju með þessa uppbyggingu og ekki síst framkvæmdir við nýja húsið. Þessi áhersla á uppbyggingu mannvirkja er í takt við að bærinn er og vill vera heilsueflandi samfélag í fremstu röð.

Björg Fenger, bæjarfulltrúi og formaður ÍTG

Almar Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður fjölskylduráðs

Fleiri greinar

Prófkjör Sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ fer fram laugardaginn 5. mars 2022

Ganga í Sjálfstæðisflokkinn